öööööööööööööööööö.........
Hvað er málið með próf? Einhvurskonar könnun sem á að mæla hversu gáfaður maður er? Einskisnýtar spurningar sem athuga hvort maður kunni að læra hluti utanbókar? Ég er á móti þessu! Þetta er mannskemmandi og á allan hátt niðurdrepandi, kvíðavaldandi, og tímafrekt apparat. Búið til af lífsþreyttum og e.t.v. þunglyndum kennara á illviðrisdegi. Yfirfarið af þröngsýnum prófdómurum sem skilja ekki frjóa hugsun. Mælir á engan hátt hversu góð manneskja viðkomandi er og hvernig hann spjarar sig í hinu daglega lífi.
Eða kannski er þetta bara leti í mér og afsökun af því ég nenni ekki að læra...
Ég ætti að drattast til að lesa.
Ég sjálfur hefur nokkuð til síns máls og verð ég því að vera honum algerlega sammála.
ORð í TímA tölu!
Djöfulsins drasl allt saman upp til hópa!
Þetta er bara spurning hverjir eru beztir í að svindla!
Vér Mótmælum, vér mótmælum allir...
góðar stundir