Frétt — Enter — 7. 4. 2011
Sleppir heilatærandi mannætuvírus á JÁ-sinna
Sjálfur hefur Baldur ekki gert upp hug sinn.

Hafnfirskur vörubílstjóri, Baldur Báruson, hefur ræktað upp illvígan, bráðsmitandi vírus sem leggst á þá sem hyggjast samþykkja Icesave, étur upp heila þeirra á u.þ.b. 7 mínútum og breytir í kynóða lesbíska zombía.

Baldur segir að hann hafi byrjað að dunda sér við vírusgerðina 'í hálfgerðu flippi' en þegar hann hafi svo prófað vírusinn í fjölskylduboði um helgina 'með frábærum árangri' hafi hann ákveðið að rækta hann til almennrar dreifingar.

Segir hann nýlegar skoðanakannanir benda til að 'þetta sé að svínvirka'.

Aðventukrans

Til sölu fallegur aðventukrans með fjórum rauðum kertum, greni og tveimur heillegum könglum. Hefur verið notaður með hléum frá árinu 1989.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Frétt — Enter — 31. 5. 2021
Fann sameiginlegan snertiflöt
Hörður stóðst ekki mátið að snerta flötinn svolítið.

Hinn alræmdi fornleifafræðingur og mennþekkjari Hörður P. Einarz hefur uppgötvað sameiginlegan snertiflöt við ósamþykktan fornleifauppgröft við Holtagarða.

Er Hörður sannfærður um að snertiflöturinn sé býsna forn, eða jafnvel allt frá tímum verslunarveldisins Miklagarðs. Hefur hann fundið merki um káf, kám og jafnvel pot á fletinum.

Hörður vonast til að frekari rannsóknir á sameiginlega snertifletinum geti leitt í ljós ástæður þess að blómleg verslun leið undir lok á þessu svæði og hefur aldrei þrifist þar síðan.

Frétt — Enter — 22. 10. 2020
Betri en eiginlega allir
Baggalútur mun vera fyrsta framúrskarandi hljómsveit Íslandssögunnar.

Það er með feikimiklu stolti sem við tilkynnum að Baggalútur er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi, annað árið í röð. Með því erum við ekki endilega að gera lítið úr þeim 98% fyrirtækja á Íslandi sem eru það EKKI, og eru þar af leiðandi í tómu rugli, rekstrarlega — en samt — við erum augljóslega betri en eiginlega allir.

Við þökkum árangurinn fyrst og fremst miklum árangri á menningar– og upplifunarsviði, en aukin áhætta sem fyrirtækið tók á köntrí– og aðventumarkaði á sínum tíma, þvert á spár sérfræðinga, hefur skilað sér í auknu eiginfjárhlutfalli og traustum rekstri. Þá var tekin umdeild ákvörðun innan stjórnar seint á síðasta áratug um að hætta alfarið rekstri kaffivélar, sem hefur skilað sér margfalt til baka.

Frétt — Enter — 17. 2. 2020
Myndmerki Baggalúts uppfært
Merki Baggalúts er margverðlaunað og er jafnan talið best heppnaða íslenska myndmerkið.

Hið fornfræga myndmerki (e. lógó) Baggalúts hefur verið uppfært. Er það gert til að mæta betur kröfum samtímans um skjámiðlun, skölun, formlegt hagræði og breytta merkjaskynjun nútíma skjáneytenda, eins og segir í fréttatilkynningu.

Merki Baggalúts var upprunalega hannað af vestgotnesku listakonunni Gertrude Zeta–Zebra og standa angar þess fyrir gildi Baggalúts; traustgefni, samhygli, þrautsýni, metnúð og frumkvæðni. Þá stendur hringurinn fyrir kvenlægni og miðdepillinn fyrir mangó. Undirstrikið er svo villa í teikniforritinu Paint.

Eftir talsverða yfirlegu og hreinteikningu þar sem öll form, litir og útlínur myndmerkisins voru tekin til gagngerrar endurskoðunar, með tilliti til fagurfræðilegrar og tæknilegrar nálgunar, var ákveðið að færa merkið upp um þrjá svokallaða „pixla“ — til reynslu.

Kona óskast

þrifaleg kona óskast nú þegar - þarf ekki að vera falleg. A.v.á.

Frétt — Enter — 3. 12. 2019
Aðventulag Baggalúts 2019: Afsakið þetta smáræði
Þetta er auðvitað ekki neitt neitt.

Baggalútur sendir frá sér glænýtt aðventulag sem ber heitið „Afsakið þetta smáræði.” Þar bregður ljóðmælandi sér í hlutverk hins hógværa gestgjafa, sem afsakar lítilræðið sem er á boðstólnum. Lagið er áminning um að forðast asann og stressið í desember og setjast aðeins niður og slaka á. En um leið að fara nú ekki of geyst í áti, útbelgingi og ítroðningi.

Lag og texti er eftir Braga Valdimar Skúlason en ótal valinkunnir veislugestir komu að hljóð– og leikmynd lagsins. Guðm. Kristinn Jónsson stýrði upptökum í félagi við Sigurð Guðmundsson og Ágúst Bent leikstýrði krásum hlöðnu myndbandi, sem tekið var upp í hinum fornfræga skíðaskála í Hveradölum.

Hér má horfa á myndband við þetta lítilræði

Og hér er samtíningurinn á Spotify

Frétt — Enter — 17. 6. 2019
Nýtt lag: Appelsínugul viðvörun!
Rétt er að vara við því sem fyrir eyru ber.

Í tilefni einmuna veðurblíðu sendir hljómsveitin Baggalútur frá sér nýtt lag, sem ber heitið Appelsínugul viðvörun.

Lagið er bæði uppblásið og háfleygt og er því tilvalin 17. júní blaðra til að sleppa í loftið á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga. Til lukku með lýðveldið.

Lagið er áhlýðanlegt á tónsprænunni Spotify. Því má dreifa sem víðast.

Frétt — Enter — 27. 2. 2019
Endurmörkun Megasar langt á veg komin
Ný ásýnd Megasar verður afhjúpuð á næstu vikum.

Allsherjar endurmörkun og ímyndarsköpun tónlistarmannsins Megasar er nú á lokametrunum. Að sögn yfirstílista verkefnisins hefur Megas verið endurskoðaður frá grunni, hann straumlínulagaður og útlit hans fært til nútímahorfs — án þess þó að hreyfa um of við sérkennum hans og alþýðlegu yfirbragði.

Samhliða þessu hafa textar Megasar verið einfaldaðir til muna til að ná til breiðari markhóps, auk þess sem þeir hafa verið leitarvélabestaðir og þýddir yfir á bæði hollensku og finnsku til að ná til stærra markaðssvæðis.

„Breytingin er ótrúleg. Hann hefur fengið alveg nýja litapalettu, nýtt og ferskt lógó, auk þess sem söngkonan Birgitta Haukdal mun ljá honum rödd sína. Sem er spennandi nýjung.“

Þá verða ný gildi Megasar kynnt, en þau eru ÁKEFÐ, EINURÐ og RÁÐDEILD.

Bidda

bíó í kvöld? Trölli.

Frétt — Enter — 26. 2. 2019
Gamli Nói keyrði kassabíl – þú trúir aldrei hvað gerðist næst!
Nói kann ekki heldur að poppa popp.

Karlmaður á besta aldri, Nói Albínusarson, tók kassabíl bróðursonar síns traustataki snemma í morgun og ók af stað í honum, án þess að biðja um leyfi.

Því miður kunni Nói ekki á stjórntæki bílsins og mölbraut því sérsmíðaðan gírkassa bílsins, sem hafði einmitt unnið Ofvitann, nýsköpunarverðlaun ofurgáfaðra leikskólabarna.

Nói komst við illan leik úr bílnum, sem gereyðilagðist. Hann var þó hinn hressasti og vildi ólmur sýna blaðamanni hvernig hann sýður egg.

ÞÚ TRÚIR ALDREI HVAÐ GERÐIST NÆST!

Frétt — Enter — 13. 2. 2019
Jólasveinarnir fá jafnlaunavottun
Kertasníkir ásamt Fjölmiðlafælni, sem er í starfsnámi hjá fyrirtækinu.

Fyrirtæki íslensku jólasveinanna fékk í dag jafnlaunavottun, en félagið hefur á undanförnum árum tekið með skipulögðum hætti á kynbundnum launamun innan fyrirtækisins og komið á metnaðarfullri jafnréttisstefnu.

„Við erum mjög ánægðir, eða alltsvo ánægð með þetta. Það eru að vísu mestmegnis karlmenn, sem starfa hjá okkur, eða eingöngu eiginlega, sem stendur. En það breytir því ekki að þetta er mikill heiður fyrir okkur… öll,“ segir Kertasníkir Leppalúðason, framkvæmdastjóri mannauðs– og jafréttissviðs Jólasveinanna.

Hann segist jafnframt vonast til að fleiri konur (og raunar fólk af öllum mögulegum kynjum) bætist í þessa rótgrónu — og um margt íhaldssömu stétt — á næstu áratugum eða öldum. Hann tekur þó fram að öllu slík aðlögun taki tíma og þurfi auðvitað að ígrunda vel. Hann áætlar að í dag séu um 300 sveinar í starfsnámi hjá félaginu, „allt jú, mögulega karlmenn“.

Frétt — Enter — 7. 2. 2019
Fékk sér snjallkall
Kristín ásamt snjallkallinum, sem hún kallar Snata.

Kristín Framnes hefur tryggt sér fyrsta íslenska eintakið af svonefndum „snjallkalli“ af gerðinni Man–o–matic 3030b.

Er þetta þáttur í alhliða snjallvæðingu heimilisins, en Kristín hefur þegar fest kaup á snjallperum, snjalleldhúsi, snjallúri, snjallsjónvarpi, snjallbíl, snjallsímstöð, snjallþvottavél, snjallrúmi, snjalltrampólíni og snjallhamstri.

Snjallkallinn hlýðir öllum fyrirmælum fljótt og vel, heldur uppi lágmarkssamræðum og er með öllu áhugalaus um knattleiki. Hann talar lýtalausa íslensku og kann skil á öllum helstu heimilisstörfum. Þá kemur hann með sérstöku unaðsprógrammi, sem þó er enn í Beta–prófunum.

Fyrrum eiginmaður Kristínar fæst gefins, gegn því að vera sóttur.

Frétt — Númi Fannsker — 5. 2. 2019
Bára og mögulegur vitorðsmaður nást á mynd
Bára (t.v.) og meintur vitorðsmaður hennar virðast vera í afar vönduðum dulargervum á myndinni.

Svo virðist sem Bára Halldórsdóttir, hljóðmeistari, og hugsanlegur vitorðsmaður hennar hafi náðst á mynd í öryggismyndavélakerfi Klaustur bars mánudaginn 19. nóvember. Er talið að þau hafi verið að koma fyrir hlerunarbúnaði og gera svokallað „sándtest,“ sem mun vera forsenda þess að gæði hljóðupptaka séu tryggð. Þau hafi svo kvöldið eftir beitt sérþekkingu sinni og háþróaðri upptökutækni til að taka upp spjall grunlausra gesta.

Á myndinni sjást Bára og meintur vitorðsmaður hennar taka ljósmyndir til að undirbúa aðgerðir kvöldið eftir. Sérstaka athygli vekur að þau eru í afar vönduðum dulargervum.



§ Spiladós




§ Úr safni Baggalúts:
ÚR SAFNI — 23. 11. 2001 — Spesi

Félag íslenskra þjóðernissinna stendur í dag fyrir námskeiði í körfugerð fyrir félagsmenn sína og aðra velunnara. Tilefni þessa námskeiðs er …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 29. 11. 2005 — Enter

Tveir karlmenn á fertugsaldri eru nú í haldi lögreglu grunaðir um mansal. Mennirnir voru handteknir í Nauthólsvík á 10. tímanum …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 25. 2. 2009 — Enter

Allt tiltækt slökkvilið var kallað út í gærkvöldi til að slökkva gríðarlega elda sem brutust út í Bloggheimum í Laugardalnum …

»MEIRA

LESBÓK — Fannar N. Fannsker — Forystugrein
 
LESBÓK — Enter — Forystugrein
 
ÚR SAFNI — 15. 4. 2010 — Enter

Í tilefni af áttræðisafmæli Vigdísar Finnbogadóttur færir Baggalútur henni lagið „Gjöf“. Lagið fær hún fyrir að vera okkur innblástur, fyrirmynd og …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 20. 11. 2003 — Spesi

Tapsárir víða af landinu komu saman á fundi í gær en þá voruð stofnuð Hagsmunasamtök tapsárra Íslendinga. Er samtökunum ætlað …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 28. 3. 2006 — Enter

Nýr einkennisklæðnaður presta var kynntur í dag. Með nýja búningnum er leitast við að færa prestastéttina nær nútímanum, en gróflega er …

»MEIRA

LESBÓK — Númi Fannsker — Dagbók
 
LESBÓK — Enter — Forystugrein
 
ÚR SAFNI — 26. 2. 2007 — Númi Fannsker

Rómantísk stemning er nú í Reykjavík, enda vorboðinn ljúfi - svifrykið, í hámarki. Svo mikið er rykið að svifryksugur Reyjavíkurborgar …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 15. 1. 2002 — Herbert H. Fritzherbert

Samgönguráðuneytið hefur sent frá sér fréttatilkynningu þess efnis að hætt verði að nota malbik til vegagerðar frá og með águst …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 18. 1. 2008 — Númi Fannsker

Valgerður Sigmar, spákona og heilunarmiðill færði Davíð Oddssyni seðlabankastjóra dóttur sína í sextugsafmælisgjöf í gær. Valgerður er mikill aðdáandi Davíðs …

»MEIRA