Hinn kunni furðufugl Már Illum, betur þekktur sem 'fuglinn í fjörunni' lést í morgun, 87 ára að aldri.
Már hefur um langt árabil hlotið gagnrýni og ákúrur bæði almennings og stjórnvalda vegna árlegrar veiðikeppni sem hann hefur staðið fyrir, þar sem hann sjálfur er fórnarlambið.
Hafði hann fyrir sið að ösla út í sjó á bleikri húfu einni klæða og reyndi að forðast að lenda í snörum og öðrum gildrum sem keppendur lögðu fyrir hann í fjöruborðinu.
Að þessu sinni tókst honum þó ekki að losa sig áður en flæddi að.
Bæjaryfirvöld á Húsavík votta fjölskyldu Más samúð sína, en auglýsa um leið eftir nýju fífli til að hressa upp á bæjarlífið.
Skipti
Lítið notaður jeppi ellegar sendibíll óskast í skiptum fyrir vel með farið kjúklingabú í Mossfellsbæ.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.
Baggalútur hefur, í samvinnu við erlenda öryggissérfærðinga, skipt út öllum lykilorðum í tölvukerfum samsteypunnar fyrir nýtt, samræmt lykilorð af öflugustu gerð. Í takt við stefnu félagsins um gagnsætt jafnrétti verður nýja lykilorðið samnýtt af öllu starfsfólki félagsins, sem m.a. mun tryggja að engin veikburða lykilorð verða lengur í umferð.
Nýja lykilorðið, 8t0c$bMp7t^HNax1
, uppfyllir ýtrustu kröfur um öryggi, bæði hvað varðar lengd og fjölbreytileika stafa.
Hólmgeir Hrafnkelsson hálfviti segir í aðsendri grein á fréttavef Baggalúts að hann hafi aldrei kallað Þórð Þrándsson hálfvita.
„Þetta eru mjög alvarlegar ásakanir á mig,“ segir Hólmgeir í greininni. „Mér er sama hvað þessi hálfviti heldur fram, ég hef aldrei kallað hann hálfvita.“
„Þessi hálfviti hefur ítrekað sýnt af sér hálfvitalega háttsemi og það er bara hreinn og klár hálfvitaskapur í honum,“ segir Hólmgeir að lokum.
Sérleg rannsóknarnefnd skipuð nokkrum hugprúðum mönnum á miðjum aldri freistar þess nú að fá hina dularfullu „apabólu“ fyrstir Þingeyinga, svo vitað sé.
Að sögn talsmanns hópsins ríkir mikil eftirvænting innan hans, en einnig nokkur kvíði, sem vonlegt er. Þeir hafi kynnt sér „bóluna“ nokkuð vel á undanförnum vikum, lesið sér til, sótt námskeið og telja sig býsna vel í stakk búna til að takast á við þennan óútreiknanlega vágest, sem hefur heillað marga að undanförnu. Gera þeir ráð fyrir að ljúka undirbúningi í kvöld og halda utan, áleiðis til Berlínar, snemma í fyrramálið.
Óskum við þeim félögum alls hins besta.
Fyrrum Bítlar!
Paul, ef þú lest þetta þá ætla ég á American Style í hádeginu.
Ringo.
Hinn alræmdi fornleifafræðingur og mennþekkjari Hörður P. Einarz hefur uppgötvað sameiginlegan snertiflöt við ósamþykktan fornleifauppgröft við Holtagarða.
Er Hörður sannfærður um að snertiflöturinn sé býsna forn, eða jafnvel allt frá tímum verslunarveldisins Miklagarðs. Hefur hann fundið merki um káf, kám og jafnvel pot á fletinum.
Hörður vonast til að frekari rannsóknir á sameiginlega snertifletinum geti leitt í ljós ástæður þess að blómleg verslun leið undir lok á þessu svæði og hefur aldrei þrifist þar síðan.
Það er með feikimiklu stolti sem við tilkynnum að Baggalútur er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi, annað árið í röð. Með því erum við ekki endilega að gera lítið úr þeim 98% fyrirtækja á Íslandi sem eru það EKKI, og eru þar af leiðandi í tómu rugli, rekstrarlega — en samt — við erum augljóslega betri en eiginlega allir.
Við þökkum árangurinn fyrst og fremst miklum árangri á menningar– og upplifunarsviði, en aukin áhætta sem fyrirtækið tók á köntrí– og aðventumarkaði á sínum tíma, þvert á spár sérfræðinga, hefur skilað sér í auknu eiginfjárhlutfalli og traustum rekstri. Þá var tekin umdeild ákvörðun innan stjórnar seint á síðasta áratug um að hætta alfarið rekstri kaffivélar, sem hefur skilað sér margfalt til baka.
Hið fornfræga myndmerki (e. lógó) Baggalúts hefur verið uppfært. Er það gert til að mæta betur kröfum samtímans um skjámiðlun, skölun, formlegt hagræði og breytta merkjaskynjun nútíma skjáneytenda, eins og segir í fréttatilkynningu.
Merki Baggalúts var upprunalega hannað af vestgotnesku listakonunni Gertrude Zeta–Zebra og standa angar þess fyrir gildi Baggalúts; traustgefni, samhygli, þrautsýni, metnúð og frumkvæðni. Þá stendur hringurinn fyrir kvenlægni og miðdepillinn fyrir mangó. Undirstrikið er svo villa í teikniforritinu Paint.
Eftir talsverða yfirlegu og hreinteikningu þar sem öll form, litir og útlínur myndmerkisins voru tekin til gagngerrar endurskoðunar, með tilliti til fagurfræðilegrar og tæknilegrar nálgunar, var ákveðið að færa merkið upp um þrjá svokallaða „pixla“ — til reynslu.
Aumingjar!
Við breytum ykkur í hesttanaða elgmassaða kalla á innan við fjórum árum!
Líkamsræktarstöðin Púlver
Baggalútur sendir frá sér glænýtt aðventulag sem ber heitið „Afsakið þetta smáræði.” Þar bregður ljóðmælandi sér í hlutverk hins hógværa gestgjafa, sem afsakar lítilræðið sem er á boðstólnum. Lagið er áminning um að forðast asann og stressið í desember og setjast aðeins niður og slaka á. En um leið að fara nú ekki of geyst í áti, útbelgingi og ítroðningi.
Lag og texti er eftir Braga Valdimar Skúlason en ótal valinkunnir veislugestir komu að hljóð– og leikmynd lagsins. Guðm. Kristinn Jónsson stýrði upptökum í félagi við Sigurð Guðmundsson og Ágúst Bent leikstýrði krásum hlöðnu myndbandi, sem tekið var upp í hinum fornfræga skíðaskála í Hveradölum.
Í tilefni einmuna veðurblíðu sendir hljómsveitin Baggalútur frá sér nýtt lag, sem ber heitið Appelsínugul viðvörun.
Lagið er bæði uppblásið og háfleygt og er því tilvalin 17. júní blaðra til að sleppa í loftið á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga. Til lukku með lýðveldið.
Lagið er áhlýðanlegt á tónsprænunni Spotify. Því má dreifa sem víðast.
Allsherjar endurmörkun og ímyndarsköpun tónlistarmannsins Megasar er nú á lokametrunum. Að sögn yfirstílista verkefnisins hefur Megas verið endurskoðaður frá grunni, hann straumlínulagaður og útlit hans fært til nútímahorfs — án þess þó að hreyfa um of við sérkennum hans og alþýðlegu yfirbragði.
Samhliða þessu hafa textar Megasar verið einfaldaðir til muna til að ná til breiðari markhóps, auk þess sem þeir hafa verið leitarvélabestaðir og þýddir yfir á bæði hollensku og finnsku til að ná til stærra markaðssvæðis.
„Breytingin er ótrúleg. Hann hefur fengið alveg nýja litapalettu, nýtt og ferskt lógó, auk þess sem söngkonan Birgitta Haukdal mun ljá honum rödd sína. Sem er spennandi nýjung.“
Þá verða ný gildi Megasar kynnt, en þau eru ÁKEFÐ, EINURÐ og RÁÐDEILD.
Karlmaður á besta aldri, Nói Albínusarson, tók kassabíl bróðursonar síns traustataki snemma í morgun og ók af stað í honum, án þess að biðja um leyfi.
Því miður kunni Nói ekki á stjórntæki bílsins og mölbraut því sérsmíðaðan gírkassa bílsins, sem hafði einmitt unnið Ofvitann, nýsköpunarverðlaun ofurgáfaðra leikskólabarna.
Nói komst við illan leik úr bílnum, sem gereyðilagðist. Hann var þó hinn hressasti og vildi ólmur sýna blaðamanni hvernig hann sýður egg.
ÞÚ TRÚIR ALDREI HVAÐ GERÐIST NÆST!
Vinnumálastofnun kynnti í morgun, í samvinnu við landbúnaðarráðuneytið, hertar aðgerðir gegn bótasvindli - en það færist í vöxt að fólk …
Helgi M. Tumason hefur verið skipaður listrænn ráðunautur Brúðubílsins. Hann tekur við af Helgu Steffensen, sem neyðst hefur til að …
Bræðurnir Ketill og Vaskur eru á leið til landsins og er áætluð lending þeirra á Snæfellsjökli eftir rúman klukkutíma. Eins og …
Kim Jörgensen, skósmiður, hefur gert tilkall til 'íslensku krúnunnar' í ljósi erfðaréttar - en Kim er eini núlifandi erfingi Jörundar …
Ný ríkisstjórn Íslands verður í svokallaðri háskerpu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá nýju stjórninni, sem segist rosa spennt að fá …
Marel hefur í samstarfi við Flögu og vélsmiðjuna Frey hannað draumráðningarvél til heimilis- og einkanota. Vélin er smíðuð úr kóbaltblönduðu …
Stuðningsmenn enska knattspyrnuliðsins Manchester United eru í sárum, eftir að dýralæknir var fyrir mistök ráðinn í starf sjúkraþjálfara hjá liðinu. …
Afar sjaldgæfur vaðfugl, bleshegri, fannst við Stokkseyri í gær. Er þetta eini fugl sinnar tegundar í heiminum að sögn finnandans, …
Stofnfundur Sprengs, samtaka fólks sem er alveg að pissa í sig, var haldinn í Súlnasal nú síðdegis. Að sögn Rögnvaldar Eyjólfssonar, …