Frétt — Spesi — 5. 12. 2001
Ice Blue kærir Williams
Geir og Robbie þegar allt lék í lyndi

Geir Ólafsson hefur kært Robbie Williams fyrir "óviðeigandi flutning" á laginu Mack the Knife, sem nýverið kom út á nýjustu breiðskífu kappans, Swing While You're Winning. Eins og kunnugt er flytur Geir sama lag á sinni nýútkomnu plötu er nefnist Á minn hátt.

"Maðurinn hefur bara ekki röddina í þetta," æpti Geir í viðtali við Baggalút. "Eins og margir vita er frægasta útgáfa þessa lags flutt af Frank Sinatra, gamla góða Blue Eyes," bætti Geir við snöktandi en viðurnefni Geirs er einmitt Ice Blue. "Ég ætla ekki að standa hjá aðgerðarlaus á meðan þessi popparabaritón skemmir svona flott lag!"

Lögfræðingur Robbie Williams kannaðist við það að hafa fengið símtal "frá einhverri snaróðri sænskri stelpu, held ég. Hún æpti og skrækti eitthvað um Mack the Knife. Verst hvað ég er slæmur í sænsku..."

Ofurhetja

óskar eftir verkefnum við hæfi. Áralöng reynsla. Getur flogið stuttar vegalengdir.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Fr?tt ? Myglar ? 24. 4. 2023
Baggalútur kynnir nýtt lykilorð
Samningurinn handsalaður

Baggalútur hefur, í samvinnu við erlenda öryggissérfærðinga, skipt út öllum lykilorðum í tölvukerfum samsteypunnar fyrir nýtt, samræmt lykilorð af öflugustu gerð. Í takt við stefnu félagsins um gagnsætt jafnrétti verður nýja lykilorðið samnýtt af öllu starfsfólki félagsins, sem m.a. mun tryggja að engin veikburða lykilorð verða lengur í umferð.

Nýja lykilorðið, 8t0c$bMp7t^HNax1, uppfyllir ýtrustu kröfur um öryggi, bæði hvað varðar lengd og fjölbreytileika stafa.

Fr?tt ? Spesi ? 21. 9. 2022
Hálfviti segist ekki hafa kallað „hálfvita“ hálfvita
Hólmgeir kveðst alvarlega vera að hugsa um að stefna „hálfvitanum“ Þórði fyrir meiðyrði.

Hólmgeir Hrafnkelsson hálfviti segir í aðsendri grein á fréttavef Baggalúts að hann hafi aldrei kallað Þórð Þrándsson hálfvita.

„Þetta eru mjög alvarlegar ásakanir á mig,“ segir Hólmgeir í greininni. „Mér er sama hvað þessi hálfviti heldur fram, ég hef aldrei kallað hann hálfvita.“

„Þessi hálfviti hefur ítrekað sýnt af sér hálfvitalega háttsemi og það er bara hreinn og klár hálfvitaskapur í honum,“ segir Hólmgeir að lokum.

Fr?tt ? Enter ? 7. 7. 2022
Freista þess að fá apabólu fyrstir Þingeyinga
Hópurinn var við æfingar fyrir leiðangurinn í morgun.

Sérleg rannsóknarnefnd skipuð nokkrum hugprúðum mönnum á miðjum aldri freistar þess nú að fá hina dularfullu „apabólu“ fyrstir Þingeyinga, svo vitað sé.

Að sögn talsmanns hópsins ríkir mikil eftirvænting innan hans, en einnig nokkur kvíði, sem vonlegt er. Þeir hafi kynnt sér „bóluna“ nokkuð vel á undanförnum vikum, lesið sér til, sótt námskeið og telja sig býsna vel í stakk búna til að takast á við þennan óútreiknanlega vágest, sem hefur heillað marga að undanförnu. Gera þeir ráð fyrir að ljúka undirbúningi í kvöld og halda utan, áleiðis til Berlínar, snemma í fyrramálið.

Óskum við þeim félögum alls hins besta.

Athugið!

Dönsku síðbuxurnar komnar. - Hafrannsóknastofnunin

Fr?tt ? Enter ? 31. 5. 2021
Fann sameiginlegan snertiflöt
Hörður stóðst ekki mátið að snerta flötinn svolítið.

Hinn alræmdi fornleifafræðingur og mennþekkjari Hörður P. Einarz hefur uppgötvað sameiginlegan snertiflöt við ósamþykktan fornleifauppgröft við Holtagarða.

Er Hörður sannfærður um að snertiflöturinn sé býsna forn, eða jafnvel allt frá tímum verslunarveldisins Miklagarðs. Hefur hann fundið merki um káf, kám og jafnvel pot á fletinum.

Hörður vonast til að frekari rannsóknir á sameiginlega snertifletinum geti leitt í ljós ástæður þess að blómleg verslun leið undir lok á þessu svæði og hefur aldrei þrifist þar síðan.

Fr?tt ? Enter ? 22. 10. 2020
Betri en eiginlega allir
Baggalútur mun vera fyrsta framúrskarandi hljómsveit Íslandssögunnar.

Það er með feikimiklu stolti sem við tilkynnum að Baggalútur er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi, annað árið í röð. Með því erum við ekki endilega að gera lítið úr þeim 98% fyrirtækja á Íslandi sem eru það EKKI, og eru þar af leiðandi í tómu rugli, rekstrarlega — en samt — við erum augljóslega betri en eiginlega allir.

Við þökkum árangurinn fyrst og fremst miklum árangri á menningar– og upplifunarsviði, en aukin áhætta sem fyrirtækið tók á köntrí– og aðventumarkaði á sínum tíma, þvert á spár sérfræðinga, hefur skilað sér í auknu eiginfjárhlutfalli og traustum rekstri. Þá var tekin umdeild ákvörðun innan stjórnar seint á síðasta áratug um að hætta alfarið rekstri kaffivélar, sem hefur skilað sér margfalt til baka.

Fr?tt ? Enter ? 17. 2. 2020
Myndmerki Baggalúts uppfært
Merki Baggalúts er margverðlaunað og er jafnan talið best heppnaða íslenska myndmerkið.

Hið fornfræga myndmerki (e. lógó) Baggalúts hefur verið uppfært. Er það gert til að mæta betur kröfum samtímans um skjámiðlun, skölun, formlegt hagræði og breytta merkjaskynjun nútíma skjáneytenda, eins og segir í fréttatilkynningu.

Merki Baggalúts var upprunalega hannað af vestgotnesku listakonunni Gertrude Zeta–Zebra og standa angar þess fyrir gildi Baggalúts; traustgefni, samhygli, þrautsýni, metnúð og frumkvæðni. Þá stendur hringurinn fyrir kvenlægni og miðdepillinn fyrir mangó. Undirstrikið er svo villa í teikniforritinu Paint.

Eftir talsverða yfirlegu og hreinteikningu þar sem öll form, litir og útlínur myndmerkisins voru tekin til gagngerrar endurskoðunar, með tilliti til fagurfræðilegrar og tæknilegrar nálgunar, var ákveðið að færa merkið upp um þrjá svokallaða „pixla“ — til reynslu.

Af nýslátruðu

Eigum fyrirliggjandi mikið af mávi eftir flugeldasýninguna á Menningarnótt. Kjötvinnsla Reykjavíkurborgar.

Fr?tt ? Enter ? 3. 12. 2019
Aðventulag Baggalúts 2019: Afsakið þetta smáræði
Þetta er auðvitað ekki neitt neitt.

Baggalútur sendir frá sér glænýtt aðventulag sem ber heitið „Afsakið þetta smáræði.” Þar bregður ljóðmælandi sér í hlutverk hins hógværa gestgjafa, sem afsakar lítilræðið sem er á boðstólnum. Lagið er áminning um að forðast asann og stressið í desember og setjast aðeins niður og slaka á. En um leið að fara nú ekki of geyst í áti, útbelgingi og ítroðningi.

Lag og texti er eftir Braga Valdimar Skúlason en ótal valinkunnir veislugestir komu að hljóð– og leikmynd lagsins. Guðm. Kristinn Jónsson stýrði upptökum í félagi við Sigurð Guðmundsson og Ágúst Bent leikstýrði krásum hlöðnu myndbandi, sem tekið var upp í hinum fornfræga skíðaskála í Hveradölum.

Hér má horfa á myndband við þetta lítilræði

Og hér er samtíningurinn á Spotify

Fr?tt ? Enter ? 17. 6. 2019
Nýtt lag: Appelsínugul viðvörun!
Rétt er að vara við því sem fyrir eyru ber.

Í tilefni einmuna veðurblíðu sendir hljómsveitin Baggalútur frá sér nýtt lag, sem ber heitið Appelsínugul viðvörun.

Lagið er bæði uppblásið og háfleygt og er því tilvalin 17. júní blaðra til að sleppa í loftið á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga. Til lukku með lýðveldið.

Lagið er áhlýðanlegt á tónsprænunni Spotify. Því má dreifa sem víðast.

Fr?tt ? Enter ? 27. 2. 2019
Endurmörkun Megasar langt á veg komin
Ný ásýnd Megasar verður afhjúpuð á næstu vikum.

Allsherjar endurmörkun og ímyndarsköpun tónlistarmannsins Megasar er nú á lokametrunum. Að sögn yfirstílista verkefnisins hefur Megas verið endurskoðaður frá grunni, hann straumlínulagaður og útlit hans fært til nútímahorfs — án þess þó að hreyfa um of við sérkennum hans og alþýðlegu yfirbragði.

Samhliða þessu hafa textar Megasar verið einfaldaðir til muna til að ná til breiðari markhóps, auk þess sem þeir hafa verið leitarvélabestaðir og þýddir yfir á bæði hollensku og finnsku til að ná til stærra markaðssvæðis.

„Breytingin er ótrúleg. Hann hefur fengið alveg nýja litapalettu, nýtt og ferskt lógó, auk þess sem söngkonan Birgitta Haukdal mun ljá honum rödd sína. Sem er spennandi nýjung.“

Þá verða ný gildi Megasar kynnt, en þau eru ÁKEFÐ, EINURÐ og RÁÐDEILD.

Fr?tt ? Enter ? 26. 2. 2019
Gamli Nói keyrði kassabíl – þú trúir aldrei hvað gerðist næst!
Nói kann ekki heldur að poppa popp.

Karlmaður á besta aldri, Nói Albínusarson, tók kassabíl bróðursonar síns traustataki snemma í morgun og ók af stað í honum, án þess að biðja um leyfi.

Því miður kunni Nói ekki á stjórntæki bílsins og mölbraut því sérsmíðaðan gírkassa bílsins, sem hafði einmitt unnið Ofvitann, nýsköpunarverðlaun ofurgáfaðra leikskólabarna.

Nói komst við illan leik úr bílnum, sem gereyðilagðist. Hann var þó hinn hressasti og vildi ólmur sýna blaðamanni hvernig hann sýður egg.

ÞÚ TRÚIR ALDREI HVAÐ GERÐIST NÆST!



§ ÚR SAFNI BAGGALÚTS:
ÚR SAFNI — 25. 3. 2004 — Númi Fannsker

Félagarnir Úlfar og Börkur luku nýverið Evrópureisu sinni þar sem þeir heimsóttu þrjá skökkustu staði veraldar. "Jú, við fórum fyrst til …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 22. 1. 2002 — Spesi

Samkvæmt rannsóknum félagsfræðinga hafa íslenskar konur að undanförnu verið síður vandlátar á karlmenn en oft áður, þar sem allir almennilegir …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 6. 2. 2012 — Enter

Lagt var til af hálfu nefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins við íslensk stjórnvöld haustið 2009 að öllum íslenskum stofnunum og fyrirtækjum yrði lokað …

»MEIRA

LESBÓK — Enter — Forystugrein
 
LESBÓK — Spesi — Dagbók
 
ÚR SAFNI — 12. 5. 2008 — Enter

Jenna Bush, dóttir meints forseta Bandaríkjanna, er loks gengin út. Var henni fundinn eiginmaður við hæfi eftir afdrifaríkt pókerkvöld föður hennar …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 8. 8. 2003 — Myglar

Með opnun nýs Baggalúts hefur ýmiskonar ný virkni verið tekin í gagnið. T.d. má nú lesa nýjustu fréttirnar með …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 15. 11. 2001 — Enter

Mikil leynd hefur hvílt yfir áætlunum Íslendinga um geimferðir. Fjölmiðlum hefur verið meinaður aðgangur að æfingasvæði íslensku geimfaranna og verið …

»MEIRA

LESBÓK — Númi Fannsker — Forystugrein
 
LESBÓK — Númi Fannsker — Forystugrein
 
ÚR SAFNI — 13. 3. 2002 — Enter

Arbogast Hinriksson var í dag skipaður veiðivörður í Elliðaárdal. Á hann að sjá til þess að viðkvæmt dýralíf svæðisins verði …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 13. 11. 2002 — Herbert H. Fritzherbert

Flugleiðir hafa tekið upp þá nýbreytni að bjóða upp á ódýr fargjöld. Til að byrja með verður einungis um örfá …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 3. 3. 2003 — Spesi

Bjartmar Geirlaugsson tölvugrúskari keypti á dögunum sinn tíunda tónlistargeisladisk, en hann hefur verið að safna að sér diskum í tæpt …

»MEIRA