Frétt — Myglar — 12. 8. 2002
Íslenskur ferðamaður kaupir Kínamúrinn
Heiðmar á þeim hluta múrsins sem fluttur verður til Akureyrar

Íslenskur ferðamaður, Heiðmar Bjarnfreðsson, hefur fest kaup á Kínamúrnum fyrir lítið fé. Heiðmar var í skoðunarferð á múrnum þegar óþekktur kínverskur kaupsýslumaður vatt sér að honum og bauð honum múrinn til kaups. "Ég fékk hann á algjört slikk" sagði Heiðmar sem hyggst selja ferðamönnum aðgang að múrnum, auk þess sem hann ætlar að láta flytja hluta hans til Akureyrar.

Auglýsendur!

Að gefnu tilefni skal minnt á að ekki er tekið við auglýsingum á vefinn nema frá fyrirtækjum sem sannanlega eru í eigu Baggalúts-samsteypunnar eða tengdra aðila.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: