Sjómenn á togaranum Skúm frá Nornafirði urðu fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu nú í morgun að fá einhverskonar járnskrímsli í trollið. "Við ætluðum fyrst að hífa það um borð, en þegar við heyrðum angistaróp á torkennilegum tungum úr iðrum þess ákváðum við bara að sökkva því," sagði Meyvant Bergsson, skipstjóri. Að sögn Meyvants var skrímslið gult með ýmiskonar áletrunum og umvafið einhverskonar segldúk.
Geðbiluð mannæta
óskar eftir að kynnast góðri konu. Má ekki reykja. Með nánari kynni í huga. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.