Frétt — Enter — 18. 6. 2002
Tilmæli Kínverja
Það kostaði ritstjórn blóð, svita og tár að komast yfir þetta bréfssnifsi

Með ótrúlegri þrautseigju hefur ritstjórn tekist að hafa uppi á bréfi kínverskra stjórnvalda til Davíðs Oddssonar þar sem settar eru ákveðnar kröfur fyrir heimsókn forsetans.

Ritstjórn biður eiginkonu forsætisráðherra afsökunar á því ónæði sem hún kann að hafa orðið fyrir meðan á fréttaöflun stóð.

Bréfið birtist hér í heild sinni.

Ísmolar

til sölu ísmolar, einn eða fleiri, vegna affrystingar ísskáps. Sanngjarnt verð. Fyrstir koma fyrstir fá.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: