Siglfirskir þríburar, sem búsettir eru í New York hafa slegið í gegn með laginu 'Threesome'. Móðir þeirra, harðdugleg síldarsöltunarkona, sem jafnframt er umboðsmaður þeirra segir þá alltaf hafa verið söngelska "..og með heilmikinn rytma í sér, sem er merkilegt miðað við hvað pabbi þeirra er mikil rola og vita laglaus."
Tríóið er sérstaklega vinsælt á klúbbum í Harlem, en þar er móðir þeirra mjög dugleg að bóka drengina enda kveðst hún þar öllum hnútum kunnug.
G-blettur
Mjög vel með farinn og lítið notaður G-blettur fæst gefins.
A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.