Einar Bæring, vagnstjóri, er búinn að sitja fyrir framan sjónvarpið sitt frá því í byrjun febrúar, til að tryggja að hann missi ekki af HM í fótbolta. Árið 1998 missti Einar að sögn af HM því hann ruglaðist á mánuðum og hann ætlar ekki að láta það koma fyrir aftur. Uppátæki Einars kann að útskýra hvers vegna leið 14 hefur verið með óstundvísasta móti upp á síðkastið.
Herbergi óskast
Reyklaus varhumar á þrítugsaldri óskar eftir að leigja herbergi með aðgangi að baði. Skilvísum greiðslum heitið.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.