Árni Johnsen, tónlistarmaður, hefur játað að hafa keypt um 12.000 lítra af Coca Cola, í þeim tilgangi að sópa að sér vinningum í sumarleik Vífilfells, á kostnað Landafundanefndar. Árni var sérlegur ráðgjafi nefndarinnar og gjaldkeri á árunum 1998-2001. Öll árin keypti hann þúsundir lítra af Coca Cola út á beiðnir frá Hafrannsóknastofnuninni, til greiðslu frá Landafundanefnd. Árni mun einnig hafa leyst út skilagjald fyrir flöskurnar, alls um 300.000 kr. Ríkislögreglustjóraembættið rannsakar nú ábendingar um Happaþrennukaup Árna og mögulega þátttöku í happatappaleik Ölgerðarinnar.
Kona óskast
á skuttogara. Þarf að vera þolgóð og útsjónarsöm.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.