Frétt — Enter — 13. 5. 2002
Vatikanið bætist á 'öxul hins illa'
Páfi sést hér heilsa að fasistasið

Bush bandaríkjaforseti hefur bætt Páfagarði í hóp ríkja sem hann nefnir öxul hins illa.

"..ég bara treysti ekki þessum leiðtoga þeirra, þessum í Ku Klux Klan búningnum," sagði Bush við fréttaritara Baggalúts. Hann telur ólíklegt að ráðist verði á Vatikanið á næstu dögum, en varar þó páfa við að vera of yfirlýsingaglaðan. "..hann platar mig ekki með þessu sífellda slefi, hér er á ferðinni illur og afar lúmskur einvaldur."

Draugar athugið

erum með mikið af fallegum eignum í sölu víða á höfuðborgarsvæðinu.

Félag fasteignasala.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: