ÁTVR hefur stórlækkað verð á flestum tegundum áfengis í verslunum sínum. Lækkunin er tilkomin vegna innflutnings ÁTVR á niðursoðnu áfengi frá Miðausturlöndum. „Eins og menn vita er niðursuðuvara yfirleitt ódýrari en fersk, við gerðum góðan díl“, sagði forstjóri ÁTVR. „Við bjóðum í byrjun upp á niðursoðið vodka og rauðvín en hyggjumst einnig hafa á boðstólnum líkjöra og jafnvel bjór, sem reyndar er í dósum fyrir, ekki niðursuðudósum samt“. Talið er að lækkunin nemi allt að 80%. Einnig er búist við að sala hefjist innan tíðar á ódýrum vakúmpökkuðum sígarettum og vindlum.
Sniffarar
Ný sending af öllum oktönum!
Skeljungur
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.