Ísraelsmenn hafa látið undan þrýstingi Bandaríkjamanna og samþykkt að létta lund þeirra Palestínumanna sem setið er um í Fæðingarkirkjunni í Betlehem. Í morgun var farið með 27 þeirra í óvissuferð um landnemabyggðir. Meðal skemmtiatriða í ferðinni var rússnesk rúlletta og umskurður.
Nokkrir duglegir sjómenn
óskast til sjórána. Upplýsingar hjá Gunnlaugi Stefánssyni, Hafnarfirði.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.