Björt Bárðardóttir, sjómaður, kom í gær færandi hendi á skrifstofu 'Samtaka um Nýal og gjörkosmískar megineindir' (SNOGM). Hún hafði undir höndum geimveru sem hún fann á háaloftinu hjá sér. "..já, ég var að taka til þegar ég sá þeta kvikindi. Ég lokkaði það til mín með rækjusalati sem ég var með á mér og stakk í svartan ruslapoka. Ferlega ógeðslegt," sagði Björt í áhugaverðu samtali við Baggalút.
Einar Ulveaus, astrólóg, var að vonum ánægður með fundinn. "..þetta er stórmerkilegt. Við tókum 'eigindina' í sundur og settum saman aftur án þess að það skaðaði hana. En það sem er kannski merkilegast er að þessi tiltekna eigind er alls ekki ósvipuð því sem við í daglegu tali köllum ketti.
Áríðandi!
Sekkjapípa óskast leigð nú þegar. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.