Fannar Númason Fannsker, einn af þjóðfélagsrýnum Baggalúts sigraði á dögunum í norrænni keppni í skíðadansi með frjálsri aðferð. "Dans hans "Blástur pelíkanans" þótti í senn: djarfur, eggjandi, frumlegur og klassískur", eins og segir í umsögn dómnefndar. Ritstjórn óskar Fannari til hamingju og hlakkar til að fylgjast með honum í Formúlu-1 kappakstrinum um næstu helgi, en þar keppir hann fyrir hönd Nivea-liðsins.
Grikkir athugið
eigum á lager ýmsar stærðir af trójuhestum. Tveggja til 26 manna. Ýmsir litir , m.a. bláir, gulir og bleiksanseraðir.
Ellingsen
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.