Svo virðist sem Sheik Sultan Al Thani sé ítrekað ruglað saman við ýmis matvæli í dómi hæstaréttar í Al Thani málinu svonefnda.
Í samtali milli sakborninga er ítrekað talað um „sturlaðan sjeik“ auk þess sem frasar eins og „sultan reddar þessu algerlega“ og „sjeiksultan verður með í öllu héðan í frá“ koma fyrir í gögnum málsins.
Svo virðist sem ákæruvaldið hafi dregið þá ályktun að sakborningar í málinu hafi verið að tala um morgunverðinn sinn og því hafi Sheik Sultan algerlega sloppið við sakfellingu í þessu skemmtilega máli.
Api
óskast um borð í togarann Hertbert VE. Má ekki vera mjög sjóveikur.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.