Ritstjórn Baggalúts er farin í sumarfrí.
Við vonum að þið verðið stillt og prúð í sumar og haldið áfram að hlusta á Eyjalagið okkar þangað þið fáið blöðrur á eyrun.
Mun ritstjórn að mestu dvelja á eyjunni Bora Bora, en hún er eins og flestir vita FOKKING ÓTRÚLEG.
Góðar stundir.
Exibisjónistar
Njótið þess að strippa án þess að þurfa að niðurlægja ykkur með því að þiggja fyrir það greiðslu. Fyrir okkur strippa allir frítt! Hestamannafélagið Blesi.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.