Frétt — Enter — 24. 4. 2014
Leiðir Fjallkonan lista framsóknar?
Fjallkonan (myndin er sviðsett (þannig lagað)).

Samkvæmt öruggum heimildum Baggalúts er sjálf Fjallkonan að íhuga að leiða lista framsóknarflokksins í borginni.

Fjallkonan er sem kunnugt er eindreginn stuðningsmaður flokksins og hefur komið að stefnumótun hans um áratuga skeið. Hún er nú búsett í Efra-Breiðholti ásamt unnustu sinni og 18 köttum og er því kjörgeng í borginni.

Standa vonir til þess að Fjallkonan fái að vera í friði fyrir svæsinni netumfjöllun, í það minnsta fram að kosningum. Góð sátt er meðal þjóðarinnar um hana, auk þess sem hún þykir bæði orðheppin og smart í tauinu (m.v. framsóknarkonu). Þá hefur hún ekki sagt neitt ljótt á svokölluðum herrakvöldum, þrátt fyrir að hafa verið tíður gestur á slíkum kvöldum gegnum tíðina, með hið vinsæla freyðibaðsdansatriði sitt.

Fallöxi

óska eftir að kaupa vel með farna fallöxi, til heimilis- og einkanota eingöngu. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: