Nýjar rannsóknir benda til þess að íslenski íhaldspungurinn hafi lítið sem ekkert þróast síðustu árþúsundin.
Hann er ennþá afar ósjálfbjarga, þröngsýnn, mannfjandsamlegur, síngjarn og ruddalegur. Hann ber lítið sem ekkert skynbragð á menningu og listir — og hefur afar vanþróaða tilfinninga- og rýmisgreind. Þá er hann eini prímatinn sem bara er karlkyns.
Hann er þó friðaður með öllu og nýtur skilyrðislausrar verndar og ótakmarkaðs stuðnings stjórnvalda hverju sinni — og er því langt frá því að vera í útrýmingarhættu. Því miður.
Loðfíll
Uppstoppaður loðfíll til sölu. Mjög vel með farinn. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.