Frétt — N?mi Fannsker — 13. 11. 2013
Illa haldinn eftir neyslu á nýju ólöglegu efni
Þættirnir um Anton, son Derricks, eru nýtt ólöglegt efni á markaðnum. Efninu er dreift kolólöglega á svokölluðu „interneti.“

Maður á fertugsaldri er illa haldinn eftir neyslu á ólöglegu efni sem hann er talinn hafa dánlódað. Maðurinn er sagður hafa horft á heila þáttaröð af þýsku þáttunum um Anton, son Derricks rannsóknarlögreglumanns - „Anton, der Sohn von Derrick.“

Honum er haldið sofandi.

Burðardýr

vantar til að flytja morfín og kólalauf til meginlands Evrópu. Þurfa að hafa aðgang að eigin bifreið. Ágæt þóknun. Afgr. vísar á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: