Erlendur hrægammasjóður hefur eignast allt hlutafé í norðlensku dúfnabúi eftir óvinveitta yfirtöku. Hrægammasjóðurinn, sem sérhæfir sig í afleiðuviðskiptum með kondóregg, festist á Íslandi með töluvert fé eftir að hafa látið ginnast til að taka þátt í fjárfestingum með rjúpnaveiðikvóta á vegum íslensku bankanna.
Sjóðurinn hefur ráðið til sín mýrdælskan skúm til að gæta hagsmuna sinna hér á landi og því má búast við að hann verði áberandi í efnahagslífinu á næstunni.
Allt í íslenska kúrinn
Flot, garnir, mör og appelsín.
Kjörbúðin Karítas
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.