Frétt — Herbert H. Fritzherbert — 13. 3. 2002
Forsetar fella hugi saman
Forsetarnir óska eftir blessun íslensku þjóðarinnar

Forseti Íslands, Herra Ólafur Ragnar Grímsson og frú Vígdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti tilkynntu íslensku þjóðinni í morgun um óvænta trúlofun sína. Forsetinn bað þjóðina um tilfinningalegt svigrúm við þetta tækifæri. Að sögn Vigdísar hittust þau skötuhjúin á ónefndu baðhúsi í vesturbænum. "Þetta var ást við fyrstu sýn. Eftir að Ólafur lét laga á sér nefið og taka augnpokana var þetta aldrei spurning", sagði Vigdís sem var óvenju kurteis og vel til fara í morgun.

Til leigu

Tilraunastofa í efra Breiðholti, hentar vel fyrir tilraunir með smærri kjarnavopn. Afgreiðsla vísar á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: