Dúettinn Astrólógó frá Neskaupstað hefur gert útgáfusamning við fyrirtækið Czheck Múzik L.E. um dreifingu og útgáfu á allt að tveimur hljómplötum í Tékklandi og Búlgaríu. Þetta er einn stærsti samningur sem íslenskir hljómlistarmenn hafa gert við tékkneskt útgáfufyrirtæki. Astrólógó hefur átt ýmsa þekkta smelli hérlendis í gegnum tíðina; lög eins og: Ying er þitt hjarta - Yang er minn hugur, nú og hið geysivinsæla Holdafar sálarinnar.
Kvenmaður
óskast til að þjóna þremur mönnum. Húsnæði fylgir. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.