Frétt — Enter — 22. 1. 2013
Viðvörun frá almannavörnum: Myrkir músíkdagar hefjast í vikunni
Frá æfingum á konsert fyrir fjórar saumavélar og Árbæing.

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið í samráði við lögreglustjórana á höfuðborgarsvæðinu, að lýsa yfir hættustigi almannavarna vegna Myrkra músíkdaga, sem hefjast í Hörpu á fimmtudaginn.

Áhersla verður lögð á það nýjasta og framsæknasta í íslenskri samtímatónlist á tónlistarhátíðinni og því er fólk beðið að halda sig innandyra meðan hún gengur yfir.

Tónlistarhátíðin var fyrst haldin árið 1980 og hefur valdið ómældum skaða allar götur síðan.

Apar

Litlir apar, stórir apar, allskonar apar. Margar stærðir. Margir litir. Henta vel við létt þjónustu- og þingstörf. Reykja ekki.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: