Formaður húsfélagsins að Netlurima 15, Grafarvogi, hefur sett stjórn félagsins af og tekið sér alræðisvald. Í yfirlýsingu frá formanninum segir m.a. að aðgerðin sé „til að tryggja stöðugleika á erfiðum tímum í sögu félagsins“ en harðvítugar deilur hafa nýverið staðið um útlit og gerð jólaskreytinga á fjölbýlishúsinu að Netlurima 15.
Starfsfólk ISS (sem áður sinnti þrifum á sameign) hefur verið ráðið til að framfylgja ströngu útgöngubanni í öllum stigagöngum hússins — auk þess að sjá um uppsetningu jólaskreytinga í takt við smekk formannsins.
Rjómabollur
Eigum fyrirliggjandi örfáar rjómabollur á frábæru verði - aðeins kr. 100 pr. 10.000 stk. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.