Vandamál hefur komið upp vegna svokallaðs jólabjórs í ár, en svo virðist sem hann seljist allur upp.
Að sögn lögreglu hefur borið á því undanfarin ár að menn selji upp jólabjór í einhverjum mæli, en nú virðist hann bókstaflega allur seljast upp — óháð tegund og inntökumagni.
Hefur þetta valdið töluverðum vandræðum, enda fylgja uppsölunum óþrifnaður, óþefur og allnokkur óþægindi.
Verður bjórinn því að öllum líkindum innkallaður og drykkjumönnum gefinn kostur á að fá brennda drykki, s.s. vodka, gin og landa, blandaða með vanilludropum í staðinn.
Allt í íslenska kúrinn
Flot, garnir, mör og appelsín.
Kjörbúðin Karítas
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.