Frétt — N?mi Fannsker — 29. 3. 2012
Lilliputti Spillemann á vitnalista sérstaks saksóknara
Lilliputti Spillemann er einna þekktastur fyrir vitnisburð sinni í svokölluðu „þessidattísjóinn-máli.“

Kunnur uppljóstrari og alræmd klöguskjóða, Lilliputti Spillemann, er á vitnalista sérstaks saksóknara í svokölluðu Al Thani máli, sem tekið var fyrir í Héraðsdómi í morgun. Ekki er vitað hvað Lilliputti Spillemann mun segja fyrir dóminum þegar hann ber vitni en samkvæmt heimildamönnum Baggalúts í herbúðum saksóknara má fastlega gera ráð fyrir að hann „kjafti öllu frá.“

Jólin byrja í IKEA

Nú eru aðeins sjö mánuðir til jóla!
IKEA

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: