Frétt — Enter — 9. 3. 2012
Aðvörun vegna norðurljósa
Norðurljós í návígi.

Fólk er beðið að hafa vara á sér vegna mikils ágangs norðurljósa.

Ljósin eru sem kunnugt er samsett úr grænu, fremur ógeðfelldu, sjálflýsandi slími sem smýgur inn um allar glufur og læsir sig í allt sem fyrir verður.

Dæmi eru um að fólk hafi vaknað upp við vondan draum, alþakið ljósaslími og ekki getað varist því þegar það smýgur inn í heilann – en þá breytir það mönnum á örskotsstundu í lifandi dauðar norðurljósaperur.

Gefins

Stefnuljós (órans).

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: