Frétt — Enter — 21. 2. 2012
Sprenging í Vogunum
Fólk er beðið að hafa vara á sér gagnvart eldri borgurum í dag, sprengidag.

Gríðarlega öflug sprenging varð í Vogunum í Reykjavík fyrir stundu.

Er talið að umfangsmikil og ítrekuð saltkjöts- og baunaneysla á heimili eldri hjóna hafi valdið sprengingunni, en þau hafa komið við sögu lögreglu áður vegna sambærilegra sprenginga, árlega um langt skeið.

Að sögn sjónarvotta höfðu gömlu hjónin „þjófstartað hádegismatnum“ í morgun og jafnframt státað sig af því að ætla að reyna nýja tegund Turbo Energy Super Blazter 3000 - bauna frá Venezuela.

Til sölu

Lítið notuð æra. Fæst fyrir lítið fé.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: