Slátrari á Seltjarnarnesinu hefur boðist til að taka að sér heimaslátrun á íslenskum rithöfundum í jólabókaflóðinu, svonefnda.
„Mér finnst ótækt að höfundum sé ekki slátrað, bara vegna þess að þeir komast ekki að hjá samþykktum gagnrýnendum. Þessi árlega slátrun er einfaldlega hluti af jólunum fyrir marga – og má ekki leggjast af.“
Fjölmargir höfundar hafa lýst yfir miklum áhuga á að láta slátra sér á Nesinu, enda tilbúnir að leggja töluvert á sig fyrir örlitla athygli fyrir jólin.
Nokkrir duglegir sjómenn
óskast til sjórána. Upplýsingar hjá Gunnlaugi Stefánssyni, Hafnarfirði.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.