Frétt — N?mi Fannsker — 7. 3. 2011
Vilja Megas sem forseta
Ný hárgreiðsla Megasar, frá í águst 2010, þykir hafa styrkt hann mjög í sessi sem vænlegan forsetaframbjóðandakost.

Hópur áhrifamanna í viðskipta- og menningarlífinu hefur skorað á tónlistarmanninn Megas að bjóða sig fram til forseta Íslands á næsta ári.

Kemur fram í áskoruninni að Megas sé „óumdeilt sameiningartákn þjóðarinnar og glæsilegur fulltrúi hennar á alþjóðlegum vettvangi.“ Hann sé „að minnsta kosti illskásti kosturinn eins og sakir standa.“

„Það er náttúrulega ekki verið að bísa tradisjóninni og afbaka trendið,“ sagði Megas aðspurður um málið.

Athafnamenn!

Vinsælu vélritunarnámskeiðin hefjast í næsta mánuði. Fingrasetning, uppsetning verslunarbréfa og margt fleira.
Tómstundaskóli Einars

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: