Frétt — Enter — 27. 2. 2002
Karíusi sýnt banatilræði
Baktus með árásarvopnið

Karíus Þorbjörnsson, tannsýkill, liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landsspítalans eftir alvarlega líkamsárás. Að sögn sambýlismanns hans, Baktusar, urðu þeir félagar varir við torkennilegt þrusk snemma í morgun. "Karíus fór fram í góm til að athuga hvað væri á seyði, svo heyrði ég ægileg læti og þusti fram. Þegar ég kom fram lá hann upp við augntönn; meðvitundarlaus, útataður í tannkremi og með alvarlega flúoreitrun."

Baktus er þungorður í garð yfirvalda: "Það hefur verið gegndarlaus áróður gegn okkar undanfarin ár og ég finn fyrir gríðarlegum fordómum. Það er farið með okkur eins og hunda og við njótum engra raunverulegra réttinda - við erum hvergi óhultir gegn árásum öfgahópa."

Rasskinna

Erótíska raftímaritið Rasskinna er komið út! Fjöldi ljósmynda!
Tryggið ykkur eintak!

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: