Frétt — Enter — 20. 1. 2011
Sigurjón: Hefur það 'Bara fínt' í gæsluvarðhaldinu
Þessi frámunalega krúttlegi bangsi tengist fréttinni óbeint.

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum bankastjóri Landsbankans segist hafa það „bara fínt“ í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni.

Þetta kemur fram í stuttum SMS-skilaboðum sem hann sendi blaðamanni Baggalúts fyrr í kvöld.

Skilaboðin eru svar við fyrirspurn í 268 tölusettum liðum um efnahagshrunið, sem Baggalútur hefur sent 73 helstu leikmönnum þess.

Sigurjón er sá eini sem hefur svarað, en hann brást með fyrrgreindu svari við lið 267: „Hvernig hefur kallinn það svo?“

Stúlku

vantar til morgunverka hjá öldruðum tvíburabræðrum. Greitt eftir sérstöku samkomulagi. Afgr. vísar á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: