Séra Símon Símonarson, sóknarprestur í Bárunesprestakalli, fékk um helgina skilaboð frá Guði.
„Hann bara byrjaði að tala við mig meðan ég var að horfa á Hringekjuna á laugardagskvöldið. Fyrst hélt ég nú bara að þetta væri eitthvað spaug hjá honum Góa - en svo mjútaði ég sjónvarpið og skilaboðin héldu áfram,“ segir séra Símon.
Hann segir skilaboðin hafa verið skýr:
1. Ekki vera með tvílitt bindi við tvílitar buxur.
2. Edik virkar vel til að ná reykingarlykt úr fötum.
3. Justin Bieber rúlar.
Til sölu
Til sölu mikið magn ónotaðra náttúrupassa.
a.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.