Frétt — Myglar — 29. 11. 2010
Kvenfélagiđ Breki verđur fyrir DDoS-árás
Jólskreytingavinnustofa kvenfélagsins mun fara fram á tilsettum tíma, ţrátt fyrir árásina.

Kvenfélagiđ Breki í Ketildalahrepp varđ um helgina fyrir viđamikilli og ţaulskipulagđri DDoS (Distributed Denial of Service) árás. Kom ţetta sér afar illa, enda hugđust félagsmenn nú á sunnudaginn halda viđamesta kökubasar í sögu félagsins.

Árásin varđ á ţann veg ađ ćttingjar félagsmanna heimtuđu allir jólasmákökur á sama tíma, sem olli ţví ađ BB* félagsins klárađist.

* BB - Bökunar-Bandvídd

Hjálpardekk

Á einhver hjálpardekk fyrir Honda skellinöđru? Svar óskast hiđ fyrsta. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Ţađ er sérlega ánćgjulegt ađ taka viđ viđurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og ţar međ hluti af ţeim 2% fyrirtćkja sem geta státađ af slíkum árangri. Ljóst er ađ yfirgnćfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá ţví ađ vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mćttu ţau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtćki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrćkurnar.

Ţađ eru tíu lykilatriđi atriđi sem hafa komiđ Baggalúti á ţennan eftirsóknarverđa stađ, sem rétt er ađ deila međ áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viđvera
  • Ekkert húsnćđi
  • Engin ţjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhćtta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtćki gćfu til ađ fylgja fordćmi okkar er ljóst ađ íslenskur fyrirtćkjamarkađur yrđi skjótt heilbrigđari og nćđi undraskjótt ađ skipa sér í fremstu röđ í heiminum. En til ţess er lítil von, međan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhćfar, ákvarđanafćlnar gungur međ allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góđar stundir.

 
Nýjustu fréttir: