Mikið magn leyniskjala hefur verið birt á vef Alþingis Íslands. Um er að ræða lagafrumvörp, þingsályktunartillögur, skýrslur, fyrirspurnir og ræður, og nær efnið tugi ára aftur í tímann. Í skjölunum er m.a. að finna allar þingræður sem fluttar voru í aðdraganda efnahagshrunsins og því við búið að birtingin komi sér afar illa fyrir fjölda þingmanna, enda vilja fæstir þeirra að almenningur komist að því hvað fram fór á þinginu á árunum fyrir hrun.
Hvítþvottur
Tökum að okkur vandaðan hvítþott fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Mikið úrval af fyrirtaks hreinsiefnum. Fullum trúnaði heitið.
Þvottahús Þórmundar og Tuma
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.