Svo virðist sem borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, sé haldinn heiftarlegu ofnæmi fyrir kvabbi og tuði.
Í fyrstu var talið að nýtt húðflúr borgarstjórans hafi valdið óþolinu, en svo reyndist ekki vera – þrátt fyrir að hann hafi sýnt væg ofnæmisviðbrögð við bláa litnum í merki borgarinnar.
Hafa samstarfsmenn Jóns verið beðnir um að sýna honum nærgætni meðan hann jafnar sig – og var þeim tilmælum beint sérstaklega til oddvita sjálfstæðimanna að hún tjái sig einungis við borgarstjóra gegnum túlk.
Bára!
Skíttíðig.
Robbi
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.