Íslensku jólasveinarnir hafa gert styrktarsamning við einn stærsta íþróttavöruframleiðanda heims, Nike.
Felur samningurinn í því að jólasveinarnir munu eingöngu gefa í skó frá Nike, sem settir eru út í glugga – en hundsa annan skófatnað, nema til að setja í þá kartöflur.
Jólasveinarnir munu að sama skapi eingöngu klæðast íþrótta- og útivistarfatnaði frá Nike í desember.
Aðspurður um hvort þetta geti ekki valdið mismunun á heimilum landsmanna spyr talsmaður jólasveinanna, Stekkjastaur, á móti: „Fyrirgefðu, en hefurðu séð vélsleðana sem við fáum?“
Gott í jólamatinn!
Tvíreykt auðmannalæri af nýslátruðu!
Einnig: útrásarfillet, skuldunautahakk, súrsaðir gróðapungar og margt fleira.
Stúdíó Kjöt
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.