Gríðarlega góð stemming er á vanskilaskrá og hefur hún aldrei verið fjölmennari.
Forsvarsmenn skrárinnar eru ákaflega ánægðir með viðtökurnar og gera jafnvel ráð fyrir enn meiri aðsókn á næstu vikum og mánuðum.
Skráin er öllum opin og er aðgangur ókeypis meðan hagkerfið leyfir.
Viðskiptafélagi óskast
Sjálfstæður fjárfestir óskar eftir samstarfi við annan sjálfstæðan fjárfesti um kaup á allt að 4 sólbaðsstofum og 11 myndbandaleigum.
Svar sendist afgreiðslu merkt: Grensásvegur 2009
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.