Tumalína Tómaz, ekkja, mótmćlti í dag á heimili sínu.
„Ć, ég nennti nú ekki ađ skćlast ţetta niđur í bć, ţannig ađ ég tók bara hressilega á ţví hér heima. Kastađi konfekttómötum í útvarpiđ, stakk títuprjónum í Moggann og öskrađi ţessi lifandis býsn á gullfiskinn minn, hann herra Árelíus.“
Ađ svo búnu segist Frú Tumalína hafa fengiđ sér blund, til ađ ná sér niđur. Hún ćtlar svo ađ taka ađra rispu seinna í kvöld og syngja valin revíulög úti á svölum.
Til sölu
Rauđur kafbátur. 20 manna. Ekinn 18.000 sjómílur. A.v.á.
Ţađ er sérlega ánćgjulegt ađ taka viđ viđurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og ţar međ hluti af ţeim 2% fyrirtćkja sem geta státađ af slíkum árangri. Ljóst er ađ yfirgnćfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá ţví ađ vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mćttu ţau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtćki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrćkurnar.
Ţađ eru tíu lykilatriđi atriđi sem hafa komiđ Baggalúti á ţennan eftirsóknarverđa stađ, sem rétt er ađ deila međ áhugasömum:
Beri önnur fyrirtćki gćfu til ađ fylgja fordćmi okkar er ljóst ađ íslenskur fyrirtćkjamarkađur yrđi skjótt heilbrigđari og nćđi undraskjótt ađ skipa sér í fremstu röđ í heiminum. En til ţess er lítil von, međan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhćfar, ákvarđanafćlnar gungur međ allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góđar stundir.