Frétt — Enter — 13. 9. 2010
Fá ekki að byggja mosku í Reykjavík
Múslemúrar hafa löngum mátt sæta fordómum hér á landi.

Skipulags- og byggingarráð hefur enn ekki samþykkt beiðni félags íslenskra múslemúra til byggingar mosku í Reykjavík.

Moskunni hafði verið fundinn staður aftan við Bæjarins bestu og átti að vera alls 45 sm á hæð – og annað eins að þvermáli.

Kröftug mótmæli nágranna urðu þó til þess að byggingunni var frestað, en í sameiginlegri yfirlýsingu Félags húsmæðra um velferð miðborgarsvæðisins var sérstaklega tekið fram að 'þessar skítugu útlensku rottur' með sína 'undarlegu siði og serímóníur' væru ekki velkomnar í hverfið.

Fyllibyttur

Fyllerí í kvöld, niðri í bæ. Fjölmennum.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: