„Já, það er rétt - ég lýg meira en ég míg.“ Segir Ingimar Mar Valdimarsson, þvaglátafræðingur. Hann hefur undanfarið rannsakað hlutfall ósannsöglis í tengslum við tíðni þvagláta.
„Já, þetta er nú hluti af doktorsritgerð minni í þvaglátafræðum,“ segir Ingimar Mar. „Ég hef samviskusamlega reiknað það út, með töluverðri nákvæmni og ítarlegri vöktun á sjálfum mér, að ég lýg að meðaltali 18 sinnum á sólarhring. Hinsvegar pissa ég bara 7 sinnum.“
Ingimar Mar mun verja doktorsritgerð sína við opna lýðháskólann á Túvalúeyjum í næsta mánuði.
Tók einhver
upp sniglamyndina skemmtilegu á RÚV í gær? Er tilbúinn að greiða vel fyrir upptökuna. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.