Frétt — Enter — 12. 4. 2010
Skrifar alltaf 'skýrlsa'
Fróðmar hafði í sjálfu sér ekkert merkilegt að segja um skýrsluna.

„Þetta er alveg ótrúlega magnað. Það er sama hvað ég reyni að skrifa 'skýrsla' oft á lyklaborðið mitt, ég skrifa alltaf 'skýrlsa'. Ferlega fyndið eitthvað,“ segir Fróðmar Freymarsson skrifstofumaður, en hann hugðist blogga dálítið um rannsóknarskýrsluna víðfrægu nú í kvöld.

„Fyrst hélt ég að það væri eitthvað að lyklaborðinu mínu, eða tölvuforritinu. En svo fattaði ég að þetta var bara ég. Þannig að ég gafst nú bara upp á þessu.“

Smjattpattar

Eru smjattpattar í garðinum þínum? Bjóðum upp á mikið úrval af gildrum og eitri til að gera útaf við litlu kvikindin. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: