Sambýlismennirnir Búddi og Dossi fengu fyrir einskæra tilviljun afar sjaldgæft lag á heilann í síðustu viku.
„Búddi vaknaði bara einn morguninn sönglandi þetta lag og ég fékk það strax á heilann,“ segir Dossi. „Við könnuðumst ekkert við það en höfum verið að raula það síðan. Rosa fínt lag sko.“
Lagið sem um ræðir nefnist Froðusnakk og hefur samkvæmt heimildum Baggalúts aðeins einu sinni verið flutt, af hljómsveitinni Niðursoðnum ufsagrýlum frá Hvammstanga í undankeppni Músíktilrauna snemma á 10. áratug síðustu aldar.
Ekki er ljóst hvernig það komst þaðan og inn í svefnherbergi þeirra Búdda og Dossa.
Vantar þig heimilistæki?
Erum að taka við pöntnum fyrir innflutning ársins 2015. Umsóknareyðublöð í þríriti fást afhennt gegn skriflegri beiðni (með hefðbundnum 3 mánaða fyrirvara).
Neyslu- og innflutningsstýringarráð ríkisins
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.