Meðfylgjandi má sjá mynd sem Blossi, ljósmyndari Baggalúts, tók um helgina af tveimur sjóðheitum drottningum í miðborg Reykjavíkur
Á myndinni má sjá þær Soffíu Spánardrottningu og Beatrixi Hollandsdrottningu fimbulmökkhellaðar á skemmtistaðnum Nasa, stútfullar af bríserum og bótoxi.
Þaðan fóru drottningarnar á, Jacobsen, Austur, Apótekið, Hressó og loks á Club 101, þar sem þær hittu stöllur sínar Elísabetu II. og Margréti Þórhildi gersamlega á halanum – og fóru þær að sjálfögðu allar í sleik.
Gylta!
Já Málfríður, þú ert gylta. Reynir.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.