Margeir Marteinsson, húsgagnabónari, hefur tjáð sig samtals 1.000.439 sinnum um Icesave. Sem er met.
Hann byrjaði að tala um Icesave-reikningana sjálfa strax og þeir voru fyrst kynntir. Í fyrstu var hann himinlifandi með þá og mælti mikið með þeim, en eftir bankahrunið breyttist tónninn nokkuð og hann varð strax fremur neikvæður í garð þeirra.
Ekki skánaði það þegar Icesave frumvarpið komst í hámæli, því síðan hefur hann tuðað stanslaust, jafnt í svefni sem vöku, um allar hliðar málsins – við alla sem hann hefur komist í tæri við.
Margeir vildi ekkert tjá sig um þetta nýja met sitt, en var þeim mun æstari í að tjá sig um Icesave.
Sönnunargögn
Eigum fyrirliggjandi ýmis sönnunargögn, engin sönnunarbyrði áhvílandi. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.