Frétt — N?mi Fannsker — 29. 10. 2009
Prestar vinna svart í kreppunni
Séra Randver játar að hafa sjálfur látið undan freistingum um svartar fermingar og grætt á því hundruð króna, undir borðið.

Svört vinna meðal presta hefur aukist mikið í kreppunni og eru dæmi um að prestar þéni þúsundir króna undir borðið.

„Já, þetta er því miður rétt,“ segir séra Randver Mikkelsen sóknarprestur í Mykjuvíkurprestakalli.
„Fólk vill voðamikið vera að rukka mann nótulaust og svona og svo eru prestar mikið að bjóða fast verð í allskyns athafnir,“ segir séra Randver.

Hann segist þekkja dæmi þess að prestar þéni allt að fimm þúsund krónur svart á einni helgi. „Jájá, þá eru menn að taka kannski brúðkaup, jarðarför og skírn um sömu helgina. Ég hef heyrt um menn sem hafa tekið allt upp í sjöþúsundkall fyrir eina helgi. Þá hefur reyndar verið hjónabandsráðgjöf í spilinu og jafnvel sálgæsla,“ segir séra Randver.

Auðtrúa asnar athugið!

Myntkörfulánin sívinsælu eru komin aftur!
Bankarnir

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: