Hafliða Briet, örvhentum sundmanni úr sunddeild Hármanns, hefur verið meinuð þátttaka á Evrópumeistaramóti fatlaðra í sundi sem fram fer í Laugardalslaug. Ástæðan var að sögn keppnisstjórnar sú að Hafliði væri ekki gjaldgengur í neinn af fötlunarflokkum mótsins, en hann hafði skráð sig til keppni í örvhenduflokki 3B, sem er miðlungsssterk örvhenda með mikilli tengdri áttavillu.
Samtök örvhentra hafa mótmælt atvikinu harðlega og benda á að þetta sé aðeins enn eitt dæmið um þær erfiðu aðstæður sem örvhentir sundmenn þurfi að glíma við. Máli sínu til stuðnings benda samtökin á að á landinu sé t.d. ekki ein einasta keppnissundlaug fyrir örvhenta (þ.e.a.s. 50m á breidd í staðinn fyrir 50m á lengd).
Spámaður
óskast til að leiða lítinn söfnuð. Ævilangri tryggð heitið. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.