Frú Ása Lárentínusar, húsfreyja og fyrrum tamningamaður, biður nú fyrir Morgunblaðinu og áskrifendum þess, en hún hefur þungar áhyggjur af fækkun áskrifta hjá blaðinu.
„Ég legg megináherslu á að biðja fyrir blaðinu, nýju ritstjórunum og zetunni. En einnig fyrir öllu því vesalings fólki sem mun brenna að eilífu í helvíti fyrir að segja upp áskriftinni – ég er ekki viss um að það átti sig á afleiðingunum.“
Frú Ása hefur aðallega beðið til Guðs það sem af er degi, en lætur þó eina og eina bæn til Ganesha, Búddah og vanagoðsins Hænis flakka inn á milli – til öryggis.
Til sölu
tveggja manna geimskip, gult, ekið 14.000 ljósár. Skipti á smábíl koma til greina.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.