Frétt — Myglar — 12. 2. 2002
LÍN boðar hertar innheimtuaðgerðir
Það hlaut eitthvað að búa að baki boxáhuga Gunnars

Lánasjóður Íslenskra Námsmanna (LÍN) hefur boðað stórhertar aðgerðir í innheimtu námslána. Sjóðurinn hefur gert samstarfssamning við nýstofnað Hnefaleikasamband Íslands varðandi framkvæmd innheimtuaðgerða og hefur Gunnar Birgisson verið milligöngumaður í þeim samningum. "Þetta er verðmæt kunnátta sem þessir boxstrákar búa yfir," sagði Gunnar glaðbeittur við fréttamann Baggalúts, "og rétt að nýta þekkingu þeirra til að þjarma að þessum stúdentaveimiltítum".

Tölvupóstur!

Á fyrirliggjandi tölvupóst frá Jónínu, Styrmi, Megasi, Ingólfi Guðbrands, Helga P. og Hófí. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Dúbbi.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: